Dekkjahöllin

Dekkjahöllin er með þjónustustöðvar á Akureyri, Egilsstöðum og Reykjavík. Dekkjahöllin er með alhliða hjólbarðaþjónustu og smurstöð. Erum umboðsaðilar fyrir Marangoni vetrardekk og sumardekk og auk þess jeppadekk frá Sigma og Tempra Winterquest og Tempra Trailcutter

Viltu verð?

Lífstíðarábyrgð Marangoni

 

 

 

 

 

 

Lífstíðarábyrgð Marangoni

 
1 - Einstök ábyrgð frá Marangoni sem veitir þér alhliða vernd – ekki eingöngu gegn framleiðslugöllum, heldur einnig gegn óviðgerðarhæfum skemmdum sem verða til við hefðbundinn akstur.
2 -  Þessi vernd ábyrgist dekkið allan líftíma þess og sýnir þannig hversu miklu máli gæði dekkjanna og þarfir viðskiptavina skipta Marangoni. 

 

 

 
LENGRA LÍF FYRIR DEKKIN ÞÍN
Með hönnun sem leggur aðaláherslu á öryggi við allar aðstæður, býður Marangoni upp á framleiðslulínu í hjólbörðum sem fullnægir öllum þörfum evrópskra ökumanna.
Öryggi, áreiðanleiki og ending er mjög háð aðstæðum og meðferð dekkjanna og er því hægt að bæta með reglulegu viðhaldi og eftirliti.
Í samvinnu við opinbera söluaðila sína býður Marangoni viðskiptavinum sínum upp á verðmæta þjónustu sem miðar að bættu öryggi, endingu og frammistöðu dekkjanna. Í boði er vítæk trygging gegn hvort tveggja framleiðslugöllum, sem og skemmdum sem verða við hefðbundinn akstur.
 
EFTIRLIT OG VIÐHALD Á NOTKUNARTÍMA DEKKJANNA:
FELGUR
Hjólabil og jafnvægisstilling skulu athuguð reglulega.
Ef þessir þættir eru í ólagi, munu þeir valda óreglulegu og hraðara sliti á dekkjum.
 
LOFTÞRÝSTINGUR
Reglubundnar athuganir á loftþrýstingi er sá þáttur sem mest áhrif hefur á öryggi og hagkvæmni dekkja.  Þetta þarf að gera þegar dekkin eru köld eða strax eftir að búið er að keyra stutta vegalengd á litlum hraða. Ef loftþrýstingur er mældur þegar dekkin eru heit vegna nýlegrar notkunar getur mæling orðið röng.
Loftþrýsting má ekki minnka í heitum dekkjum undir neinum kringumstæðum. Of lítill loftþrýstingur orsakar meiri skaða og hættu en of mikill þrýstingur.
Of lítill loftþrýstingur getur valdið:
·         skemmdum í uppbyggingu dekksins vegna of mikils hita (afmyndun);
·         minnkandi gripi og aukinni hættu á floti;
·         óreglulegu og miklu sliti á köntum;
·         aukinni hættu á að dekkið skemmist við högg.
Of mikill loftþrýstingur getur valdið:
·         óeðlilegu sliti á miðju banans;
·         óþægilegri akstri.
 
MUNSTURDÝPT
Munsturdýpt þarf að vera að minnsta kosti meiri heldur en lágmarks mynsturdýpt skv. lögum.
Grip dekkjanna minnkar jafnt og þétt þegar dekkið slitnar.

ANNAÐ EFTIRLIT
·         Ef gúlpar sjást á hliðum eða skurðir, er nauðsynlegt að fara strax á hjólbarðaverkstæði.
·         Ef dekk hefur orðið fyrir slæmu höggi, skal láta skoða það á hjólbarðaverkstæði, jafnvel þó ekki sjái á því.
·         Felgur skulu skoðaðar reglulega, þ.e. leita eftir beyglum og skemmdum, sem geta haft áhrif á dekkin.
·         Hægt er að vissu leyti að meta ástand á hjólabúnaði og drifbúnaði bílsins auk demparabúnaðar með því að skoða hvort dekkin eru jafnt slitin.

 

Skilyrði fyrir því að Marangoni trygging sé í gildi

Ábyrgðin gildir út endingartíma nýs hjólbarða, óháð því hvenær hann er keyptur.

Réttindi tryggingarinnar er ekki hægt að flytja á annan einstakling eða bifreið heldur en tryggingin er gefin út á.

Tryggingin tekur yfir skemmdir og galla sem orsakaðir eru af:

1.      galla í framleiðsluferli og/eða hráefni

2.      óviðgerðarhæfar skemmdir vegna hefðbundins aksturs á vegum

 

Aðstæður þar sem tryggingin gildir ekki og skemmdir ekki bættar:

 

a)     Óreglulegt og/eða óeðlilegt slit vegna mekanískra ágalla bifreiðar, notkunar á gölluðum felgum og/eða rangri felgustærð, notkunar á öðrum loftþrýstingi en mælt er með, ofhleðsla á bifreið og/eða dráttur á vagni sem fer yfir það sem bílaframleiðandi gefur upp.

b)     Skemmdir vegna rangrar eða of langrar notkunar snjókeðja.

c)      Skemmdir vegna notkunar í keppnum.

d)     Óviðeigandi notkun dekkjanna miðað við tæknilega eiginleika hans, sérstaklega skemmdir og óeðlilegt slit vegna aksturs utan þjóðvega.

e)     Þegar hægt er að gera við dekkið.

f)       Skemmdir vegna mistaka við umfelgun.

g)     Skemmdarverk og þjófnaðir.

h)     Skemmdir vegna umferðaslysa.

i)       Vandamál vegna slysa, eldsvoða eða náttúrhamfara.

j)       Eyðing vegna langrar snertingar við jarðolíur, vetniskolefni, leysiefni, sýrur.

k)     Dekkjastærðir, burður og hraðakstur ekki í samræmi við það sem gefið er upp í skráningarskýrslum ökutækisins.

 Innheimta ábyrgðar

Til að fá dekk bætt þarf að mæta með dekkið og rétt útfyllt ábyrgðarskírteini til viðurkennds söluaðila Marangoni.

Söluaðilinn sér um að meta dekkið og heldur því eftir og er því ekki hægt að gera frekari kröfu vegna þess.

Ábyrgðin bætir:

1.     dekk með 80% eða meira eftir af munstri verður bætt með nýju Marangoni dekki af sömu (eða samsvarandi) tegund og stærð.

2.     ef minna er eftir af dekkinu en 80%, þá mun viðskiptavinurinn greiða sem nemur því hlutfalli af munstri sem búið er af dekkinu (munurinn á munstri í nýju dekki og því sem eftir er af munstri í dekkinu).

3.     ef munstur er minna, en lágmarks munsturdýpt skv. lögum, gildir ábyrgðin ekki (1,6 mm).

ATH! Umfelgun og jafnvægisstilling og umskipti skal í öllum tilvikum greiðast af viðskiptavini.






Veður og færð

Akureyri
SA 3 m/s
0.0 °C
Möðrudalsöræfi
S 3 m/s
-8.0 °C
Egilsstaðir
SSA 1 m/s
-3.0 °C
Öxnadalsheiði
A 3 m/s
-2.0 °C
Holtavörðuheiði
SSV 7 m/s
-1.0 °C
Reykjavík
ASA 3 m/s
3.0 °C
Hellisheiði
ASA 10 m/s
0.0 °C
Reykjanesbraut
A 3 m/s
0.0 °C

Færð á vegum
Skoða veðurkort

Mynd augnabliksins

oskudagur12_162.jpg

Deildin

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning