Dekkjahöllin hefur í áraraðir boðið upp á dekkjahótel. Við geymum dekkin fyrir þig á öruggum stað svo að þú þurftir ekki að láta dekkin taka dýrmætt pláss í geymslunni.
Sértu með dekk á felgum þá er það ekki vandamál. Þegar þú kemur svo í umskipti þá erum við búnir að jafnvægisstilla dekkin þannig að það eina sem þarf að gera er að skipta um dekk. Einfalt og umfram allt þægilegt.
Hver dekkjagangur er tengdur bílnúmeri og jafnframt fyllir bíleigandi út geymslumiða sem tengdur er númeri sem sett er á hvert dekk.
Sendu dekkin í frí á dekkjahótelið okkar. Dekkjahótel er starfrækt á öllum þjónustustöðvum okkar.











